news

Hreyfing í gönguferð

29. 10. 2020

Í dag, fimmtudag, fóru nemendur á Smára í gönguferð. Ferðinni var heitið á leikvöll hér í nágrenninu en á leiðinni ákváðum við að gera nokkrar æfingar. Á einum stað gerðum við t.d. sjö froskahopp, á öðrum tókum við jógapásu og gerðum "Tréð" og á enn öðrum fórum við upp og niður hól og sungum "Upp, upp, upp á fjall". Þá lékum við okkur góða stund á leikvellinum þar sem það var klifrað upp kaðal, klifrað á steinum, rólað, renna niður rennibraut, klifra upp stiga og fleira. Já við komumst kannski ekki í fimleikasalinn þessa dagana en það er hægt að gera allskonar æfingar í útiverunni eða göngutúrnum og einmitt frábær skemmtun og upplifun að gera hreyfingu annars staðar en í íþróttasal.




© 2016 - 2024 Karellen