news

Okkur finnst rigningin góð :)

03. 09. 2020

Hópur af Smára skellti sér út í rigninguna og bleytuna í gær, fimmtudag. Þau tóku með sér pappír, pensla og vatnsliti og máluðu eina mynd saman. Það er alltaf gaman að mála og líka spennandi að mála úti. Börnunum leist samt ekkert á að mála í rigningunni og því erum við þarna undir skyggninu. En skemmtilegt var þetta engu að síður :) Það er nefnilega þannig að allt sem hægt er að gera inni er líka hægt að gera úti.

© 2016 - 2024 Karellen