Sumarlokun Kiðagils árið 2022.
Sumarlokun Kiðagils árið 2022 er frá 27.júní til 22.júlí að báðum dögum meðtöldum. Síðasti opni dagurinn fyrir sumarlokun er föstudagurinn 24.júní þá lokar leikskólinn kl 14:00. Tímann frá 14:00-16:00 nota kennarar til að gera upp skólaárið og ganga frá deildum fyrir sumarfrí.
Leikskólinn opnar aftur eftir sumarfrí mánudaginn 25.júlí kl 09:00. Tímann frá 08:00-09:00 nota kennarar til að undirbúa komu nemenda í leikskólann eftir sumarfrí.

Í sumarlokun eru viðgerðir á deildum, hluti af skólanum málaður. Hreingert, gólf hreinsuð og bónuð. Ráðist er í breytingar, sem ekki er hægt að gera á opnunartíma á meðan skólinn er lokaður þessar 4 vikur.

Sumarlokun Kiðagils árið 2023

Sumarlokun Kiðagils árið 2023 er 3.júlí til 28.júlí að báðum dögum meðtöldum. Siðasti opni dagurinn fyrir sumarlokun er föstudagurinn 30.júní og leikskólinn opnar aftur eftir sumarfrí mánudaginn 31.júlí.


Sumarlokun Kiðagils árið 2024

Sumarlokun Kiðagils árið 2024 er 1. júlí til 26.júlí að báðum dögum meðtöldum. Siðasti opni dagurinn fyrir sumarlokun er föstudagurinn 26.júní og leikskólinn opnar aftur eftir sumarfrí mánudaginn 29 .júlí kl. 09:00




© 2016 - 2024 Karellen