news

Bleikur október

27. 10. 2020

Bleikur dagur var í leikskólanum í október. Þá mættu börn og kennarar í bleikum buxum, peysum, sokkum, bolum og með bleikt hárskraut í tilefni dagsins. Nemendur á Smára teiknuðu myndir og máluðu svo með bleikri vatnsmálningu yfir og til urðu þessar fallegu bleiku myndir. Þar sem foreldrar mega ekki koma inn í leikskólann um þessar mundir vegna Covid nýttum við gluggana þannig að allir geti notið þessara fallegu listaverka.

© 2016 - 2024 Karellen