news

Engjarós - Heimsókn á slökkviliðstöðina.

12. 05. 2021

Í dag fórum við í heimsókn á slökkviðliðsstöðina. Rúta kom og sótti okkur og farið var yfir reglur sem giltu á svæðinu. Við byrjuðum á því að fara í gegnum rör. Fórum síðan upp stiga og rendum okkur niður vatnsrennibraut. Fengu að sprauta vatni úr brunaslöngu á tunnur. Fórum upp á slökkvibíl og renndum okkur niður rör og lentur í reyktjaldi. Síðan fórum við í gegnum úðara og bleyttum okkur aðeins. Fórum síðan inn og fengu pylsu og safa. Síðan var myndataka og við náðum aðeins að kríta. Við fórum síðan með rútu heim aftur.

© 2016 - 2024 Karellen