Leikskólafatnaður:

Nauðsynlegt er að börnin komi í þægilegum fötum í skólann þannig að þau eigi auðvelt með að hreyfa sig. Í skólanum er unnið með ýmiskonar efni s.s. málningu og lím eða áhöld sem geta skemmt föt. Í fataherbergjum skólans er hægt að fá eyðublað fyrir pöntun á mjög handhægum merkimiðum til að merkja fatnað barnanna. Barninu þarf að fylgja aukafatnaður. Þegar barnið byrjar í leikskólanum fær það tvær merktar körfur til að geyma aukaföt í ein er inná baðherbergi fyrir auka-inniföt og hin er frammi í fatherbergi fyrir auka-útiföt. Mikilvægt er að foreldrar fylgist með því að fataþörfum barnsins úti og inni sé fullnægt þar sem skólinn lánar ekki fatnað. Hringt er í foreldra og þeim skylt að koma með föt á barnið ef ekkert er til skiptanna þegar barnið þarfnast þess. Þegar foreldrar koma með börnin sín í byrjun vikunnar setja þeir í hólf í hólf barnsins viðeigandi útifatnað fyrir daginn og körfunum uppá hillunni eiga vera auka útiföt, foreldrar taka með sér heim poka/bakpoka. Í lok vikunnar koma foreldrar með pokann/bakpokann tæma hólfin fyrir helgina en það má skilja eftir föt í körfunni.

Á þeim tíma sem barnið er að hætta með bleyju eða eitthvað er sem veldur því að mikið þarf að skipta um fatnað verður að passa að hafa frekar meira en minna til skiptanna.

Aukafatnaður sem ávallt þarf aðvera til staðar fyrir barnið í körfu inná deild:

Nærskyrta, nærbuxur x2, tvennir sokkar, sokkabuxur eða gammósíur, buxur, peysa og tvenn koddaver fyrir nemendur á GME og Sóley.

Karfa fyrir útifatnað:
Tvennir vettlingar, ullarsokkar, hlý peysa, pollavetlingar.


Hlífðarfatnaður:

Mikilvægt er að barnið hafi meðferðis útifatnað sem hæfir veðurfari hverju sinni, hann sé þægilegur, hæfilega stór, snyrtilegur og vel merktur, og verið meðvituð um að barnið vex en brókin ekki, því er mikilvægt að máta reglulega skó, stígvél, pollafatnað og annað sem barninu tilheyrir. Á skálmum flestra polla, hlífðar og snjófatnaðar er teygja til að setja undir skó og er mjög gott ef hún er endurnýjuð þegar hún slitnar teygjan varnar því að buxurnar þræðist upp skálmina og barnið verði blautt.

Á þeim tíma sem barnið er að hætta með bleyju eða eitthvað er sem veldur því að mikið þarf að skipta um fatnað verður að passa að hafa frekar meira en minna til skiptanna.

Mikilvægt að merkja

Það er mjög mikilvægt að merkja fatnað barnsins vel. Margir aðilar eru að selja skemmtilega merkimöguleika og má finna ýmislegt því tengdu á vefnum. Gamla góða leiðin að skrifa með bleki sem ekki þvæst úr er líka í fullu gildi.

Leiðbeiningar í bleytutíð.

Við rekum okkur oft á að í bleytutíð er pollafatnaður barnanna blautur þegar á að nota hann, þetta á sérstaklega við þá galla sem eru með flís-fóðri að innan. Við viljum því biðja ykkur að hengja fatnaðinn á röngunni í hólf barnanna eða fara með hann heim milli daga og þurrka þetta á einnig við um regnvettlinga og lúffur. Losa þarf stígvél/kuldaskó úr skálmum því þar þornar ekki ef loftar ekki um, og nauðsynlegt er að snúa klæðnaðinum á réttuna og gera kláran til notkunar næsta dag.

Það er ykkar foreldranna að sjá um að klæðnaður barnanna sé aðgengilegur og tilbúin til notkunnar :)




© 2016 - 2024 Karellen