Fjölskylduafsláttur er veittur af grunngjaldi. Tenging er á milli dagforeldra, leikskóla og frístundar. Til að njóta fjölskylduafsláttar þurfa börnin að vera skráð á kennitölu sama forrráðamans og með sameiginlegt lögheimili.

Lægra gjald greiða einstæðir foreldrar, báðir foreldrar í námi, báðir foreldrar atvinnulausir, báðir foreldrar 75% öryrkjar, annað foreldrið í námi og hitt atvinnulaust eða 75% öryrki. Sýna þarf fram á það sem talið er upp hér að framan með framvísun vottorðs. Foreldrar í námi þurfa að sýna fram á skólavist með vottorðum í byrjun hverrar annar. Á vottorðinu þarf að koma fram að viðkomandi sé í fullu námi sem varir að minnsta kosti í eitt ár. Í lok annar þarf að skila staðfestingu um námsframvindu. Foreldrar sem skilja eða slíta samvistum og óska eftir lægra gjaldi þurfa að skila vottorði vegna þess frá Sýslumanni. Foreldrar sem eru atvinnulausir skila inn vottorði frá Vinnumálastofnun og foreldrar sem eru öryrkjar skila inn vottorði frá Tryggingastofnun.

Gjaldskrá leikskóla sem tók gildi þann 1. október 2023

Gjaldskrá leikskóla 1.10. 2023

Gjaldskrá leikskóla frá 1. janúar 2024




© 2016 - 2024 Karellen