news

Smári: Hljóðfærakynning

10. 03. 2021

Guðrún, kennari, kom með fiðluna sína í síðustu viku en hún hefur lært á fiðlu í nokkur ár. Guðrún sagði okkur frá fiðlunni, sýndi okkur nótur og spilaði svo nokkur lög fyrir okkur. Svo spilaði hún Litalagið og sungum við með. Börnin fengu aðeins að koma við fiðluna og fiðlubogann og gaf þetta tækifæri til að ræða bæði um virðingu og ábyrgð. Þetta var mjög góð skemmtun og börnin horfðu og hlustuðu hugfangin á fiðluspilið.


© 2016 - 2024 Karellen