news

Engjarós - sjóræningjadagur

22. 09. 2023

Í dag var sjóræningjadagur í leikskólanum. Engjarósarbörnin bjuggu til fána og kíki í tilefni af deginum. Við fengum póst frá Kobba Kló og lánaði hann okkur fjársjóðinn sinn sem hann faldi í sandkassanum. Börnin voru mjög spennt að leita af fjársjóðnum og byrjuðu þau að nota hendur sínar til að leita. Síðar fengu þau skóflur til að leita. Eitthvað að fjársjóðnum kom ekki í leitirnar en það finnst vonandi á næstu dögum. Þegar við vorum búin að finna fjársjóðinn fórum við inn og fengum popp. Síðan var leikið með fjársjóðinn og fjársjóðskistuna.

© 2016 - 2024 Karellen