news

Barnamenningarhátíð á Akureyri

31. 03. 2023

Nemendur af Smára og Engjarós fóru í bæinn í gær, fimmtudag, og opnuðu sýninguna sína "Heimur og haf". Alla vorönnina hafa þau verið að vinna að verkefnum fyrir sýninguna og höfum við tengt inn í þá vinnu allskonar fræðslu, sköpun, ferðir og tónlist. Við fórum í samstarf við listamanninn Egill Jónasson sem kom til okkar í nokkur skipti og tók um söng barnanna og svo fengu þau að spila á hljómborð og gera hljóð yfir og úr varð heilmikið hljómlistaverk sem mun hljóma undir á sýningunni. Hvetjum ykkur eindregið til að kíkja á sýninguna.

Verkefni er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Hér má sjá frétt um opnunina https://www.akureyri.is/is/frettir/toku-forskot-a-...


© 2016 - 2024 Karellen