news

Kiðagil 28 ára

19. 09. 2023

Fimmtudaginn 14. september varð leikskólinn Kiðagil 28 ára. Við héldum upp á daginn með því að flagga, allir höfðu búið til afmæliskórónur í tilefni dagins og svo var kjötsúpa í hádegismatinn. Eins og í góðri afmælisveislu var að sjálfsögðu boðið upp á íspinna í eftirrétt. Í útiverunni eftir hádegið var boðið upp í dans og var m.a. annars farið í Hóký poký, Fugladansinn, Superman, Skósmíðadansinn og fleiri skemmtilega dansa áður en farið var í frjálsa aðferð. Við enduðum dansstundina á hugleiðslu þar sem við hlustuðum á stafahugleiðslu um stafinn A áður en við fórum inn í nónhressingu þar sem boðið var uppá peruböku með rjóma. Já, aldeilis skemmtilegur og góður afmælisdagur fyrir skólann okkar.

© 2016 - 2024 Karellen