news

Lagfæringar á lóðinni

02. 10. 2023

Á föstudaginn var verið að laga lóðina okkar. Það var mikið líf og fjör í garðinum og mjög spennandi að fylgjast með framkvæmdum. Þar mátti sjá gröfu, dráttarvél og vörubíl og það var verið að grafa, lyfta, keyra fram og tilbaka og í gegnum hlið á girðingunni. Þetta var allt saman mjög spennandi og gafst góð málörvun að ræða hvað var í gangi og hvað gæti gerst næst. Við vorum heppin á Smára að geta fylgst með gangi mála í gegnum gluggann hjá okkur.


© 2016 - 2024 Karellen