Í nóvember fóru Engjarósarkrakkarnir og skoðuðu Giljaskóla. Fyrst fóru þau í bókasafnið þar sem Ingunn tók á móti þeim las fyrir þau sögu og sýndi þeim bókasafnið. Síðan fengu þau að skoða bækur.
Seinna fórum við aftur í skólaheimsókn þar sem við byrjuðum á því að vera með 1. bekk í frímínútum. Síðan fórum við inn í skólastofuna þar sem 1 bekkingar fóru með börnin í ýmis verkefni. Þau voru m.a. að lita, finna orð og minnisspil. Börnin stóðu sig vel og fannst gaman að kíkja á skólann.